Forsíða
Fréttir
Um okkur
Hundarnir
Handling
Hundavörur
Tenglar
Gestabók
 
   
     
 

Beisli

 

Dráttarbeisli

Handunnið, einstaklega sterkt bólstrað beisli sem veitir hundinum rétt álag á líkamann þegar hann dregur.
Beislin er hægt að fá í mörgum fallegum litum.

 

 

 

Göngubeisli

Veitir hundinum rétt álag á búkinn í taumgöngu sem og við drátt á hjóli. Virkilega létt, sterkt bólstrað beisli sem auðvelt er að klæða hundinn í. Beislin eru fáanleg í fjölmörgum fallegum litum. Einfaldara og betra gerist það ekki!

 

 

 

Hálsól

Hálsólar

Frábærar bólstraðar nælon hálsólar með endurskini. Smeygjast yfir höfuð hundsins þegar þær eru settar á. Hálsólarnar eru dökk grænar að lit.

 

 

Taumar

 

Taumar

Fallegir langir taumar með sterkum krók til að tengja við hálsól, tvítaum eða beisli. Taumarnir eru með bólstruðu haldfangi sem gerir þá þægilega til að halda í. Eins og hálsólarnar þá eru taumarnir dökk grænir að lit.

 

Mittisbelti

 

 

Mittisbelti með krók

Ertu þreytt/þreyttur á að halda í ól hundsins í göngutúrum, skokkar eða labbar með hann ykkur báðum til heilsubótar eða jafnvel við drátt á gönguskíðum. Beltið léttir á og gerir þér kleyft að vera með hendurnar frjálsar. Taumarnir festast í krók á beltinu sem situr fast á mjöðmum þér.

 

Flauta

 

 

Hundaflauta

Eintóna flautur úr beini sem henta vel við sæki vinnu og aðra veiðiþjálfun.

Endurskins vesti

Einstaklega sniðug fyrir alla stærri hunda. Vestið er gult öðru megin og appelsínugult hinu megin og er það því val eiganda hundsins hvaða litur eigi að snúa upp. Vestið er létt og meðfærilegt og er ákaflega vinsælt meðal eigenda veiðihunda.

 

 

 

Tví-taumur

Vinsæll tengitaumur til að tengja saman tvo hunda við einn taum. Frábær lausn þegar þú ert með tvo hunda í göngu í einu.

Til hvers að flækja málin, þegar þau geta verið svo einföld!

Athugið, einnig er hægt að fá þessa vöru með endurskini.

 

 

Draglína

Fest á hundinn og tengt við það sem hann á að draga. Hægt er að fá draglínuna með teygju.

Athugið að taka fram við pöntun fyrir hve marga hunda draglínan á að vera.

 

 

The Golden Wagon

Ekki láta snjóleysið hindra þig, þessi frábærlega vel hannaði hjólasleði gerir þér kleift að stunda sleðasportið allt árið um kring.

Vinnuhundum finnst fátt skemmtilegra en að hafa verkefni og er hjólasleðinn frábær leið til þess að leyfa hundunum að njóta sín og þú skemmtir þér konunglega í leiðinni.

 

 

Björkis 2004

Skemmtilega léttur sleði fyrir 1-4 hunda.

Rúmgóður og stór poki sem festist á sleðan er innifalinn í verði.

Bremsur og draglína fyrir tvo hunda fylgja með

 

Vesti Ól

 

 
     

 

 

 
 
| © Allur réttur áskilinn, afritun af síðunni er óheimil án leyfi eiganda | Vefhönnun: Begga |