Fréttir 2009
Fréttir 2008
27. nóvember 2009
Í dag héldum við hvolpahitting fyrir hvolpana undan Queen okkar og var ofboðslega gaman að sjá hvað þeir eru að þroskast vel og hvað eigendur þeirra eru ánægðir með þá.
Uggi (Tristan) og Cara (Thule) eru byrjuð á hvolpanámskeiði hjá Hundaskóla Hundalíf og eru að standa sig vel enda duglegir litlir 4 mánaða gamlir hvolpar.
Að sjálfsögðu tókum við nokkrar myndir af litlu skæruliðunum.

3. október
Nú er komið að síðustu hundasýningu ársins hjá Hundaræktarfélagi Íslands.
Við skráðum ekkert af hundunum okkar á þessa sýningu því Anna vildi einbeita sér að hringstjóra náminu sínu.
En að vanda sýndi Anna nokkra þýska fjárhunda og þar á meðal Gildewangens Istan og afkvæmi hans. Istan vann besta afkvæmahóp tegundar og kepptum við með hópinn við hinar tegundirnar í úrslitum sýningarinnar seinna um daginn.
Hann gerði sér lítið fyrir og vann með afkæmi sín besta afkvæmahóp sýningar.

2. oktober
Nú eru allir hvolparnir farnir úr kotinu og er þeirra sárt saknað. Við huggum okkur á því að þeir eru allir á fullkomnum heimilum þar sem vel er hugsað um þá.
Gunnarsholts Trix verður áfram í okkar eigu en mun búa hjá góðu vinafólki.
28. sepember
Í dag urðu hvolparnir 8 vikna og fórum við með þá í tilefni af afmælisdeginum í hvolpaskoðun. Þeir fengu allir fulla skoðun og eru heilbrigðir og fínir.
Á næstu dögum fara þeir á framtíðarheimilin sín.
20. september
“Dísa amma” kom í heimsókn í dag og voru hvolparnir að sjálfsögðu skoðaðir bak og fyrir. Allir hvolparnir stóðu sig vel en voru samt ekki alveg til í þessar myndatökur og vildu bara leika.

29.ágúst
Í tilefni af 4 vikna afmæli hvolpanna þá fórum við út í garð með þá og tókum myndir af þeim. Þeir hafa allir fengið nafn og heita þeir Gunnarsholts Trix, Gunnarsholts Thule og Gunnarsholts Tristan.
Hérna koma nokkrar myndir af skæruliðunum:

22.-23. ágúst
Þessa helgina sýndi Anna hana Bliss á afmælissýningu Hundaræktarfélags Íslands.
Sýningin var tvöföld að þessu sinni og því hún sýnd báða dagana.
Á laugardeginum var hún sýnd undir dómaranum Jean Lenning og fékk hún frábæra dóma og íslenskt meistarastig. Á sunnudeginum var hún sýnd undir dómaranum Rune Fagerström og fékk einnig frábæra dóma frá honum og sitt annað íslenska meistarastig. Báða dagana varð hún besti hundur tegundar!
Frábær helgi að baki fyrir hana Bliss okkar!
10. ágúst
Við getum ekki hætt að dást að hvolpunum, hérna koma nokkrar myndir

4. ágúst
Hvolpunum heilsast vel og þyngjast á ógnarhraða. Queen stendur sig fullkomlega í móðurhlutverkinu og liggur öllum stundum í gotkassanum og hugsar um hvolpana.

3. ágúst
Í kvöld fæddust þrír gullfallegir þýskir fjárhunds hvolpar og heilsast móður og hvolpum vel. Hvolparnir voru mjög stórir og þungir og var því fæðingin ekki sú auðveldasta fyrir hana Queen okkar. En allt endaði vel sem betur fer;)
1. júlí
Þessi mánuður byrjar svo sannarlega vel !
Við fórum með Queen í sónar í dag og hún er staðfest hvolpafull.
25.-27. júní
Þessi helgi var svo sannarlega viðburðarrík!
Sumarsýning Hundaræktarfélags Íslands fór fram og hafði Önnu verið boðið að dæma keppni ungra sýnenda. Anna dæmdi unga sýnendur á föstudagskvöldinu og gekk það ljómandi vel.
Á laugardeginum sýndum við þýsku fjárhundana. Við skráðum Queen okkar að þessu sinni en hún hefur ekki oft verið sýnd. Hún vann opinn flokk með excellent og meistaraefni. Keppti síðan við fjöldann allan af tíkum og gerði sér lítið fyrir og varð besta tík tegundar með sitt fyrsta íslenska meistarastig. Besti hundur tegundar varð hann Istan okkar, verðandi pabbi hvolpana sem Queen ber. Dómarinn varð mjög ánægður með að heyra það að það væru hvolpar væntanlegir undan Queen og Istan.
Við sýndum svo Flatcoated Retriever tíkurnar okkar á sunnudeginum og fékk Joy sitt annað íslenska meistarastig undir dómaranum Svein Helgesen.
Bliss varð önnur besta tík tegundar með meistaraefni.
2. júní
ISW-07 ISCH Gildewangens Istan er í heimsókn hjá okkur og mun hann vera paraður við hana Queen næstu daga.
20. mai - 26. mai
Önnu hlotnaðist mikill heiður og var boðið að dæma keppni ungra sýnenda á alþjóðlegri sýningu í Österbybruk í Svíþjóð fyrir skömmu og var loksins núna komið að því.
Anna ákvað að nýta ferðina til fulls og gisti heima hjá góðri vinkonu okkar og ræktanda Joy og Bliss, Sussie Karlström. Þær fóru meðal annars heim til hins meðeiganda Almanza ræktuninnar, Raghild Ulin á fimmtudeginum og héldu Sussie og Ragnhild námskeið í klippingu á Flatcoated Retriever hundum fyrir hvolpakaupendur.
Ragnhild sem er viðurkenndur FCI dómari hélt einnig smá fyrirlestur um byggingu tegundarinnar.
Á laugardagsmorgninum fæddust síðan hvolpar heima hjá Ragnhild og er það got sem við höfum beðið eftir enda leynist lítill Íslands fari í þeim hópi.
Anna dæmdi keppni ungra sýnenda bæði laugardag og sunnudag. Keppendur stóðu sig vel og var Anna ánægð með hóp keppenda.
Næsta dómaraverkefni Önnu er á hundasýningu Hundaræktarfélags Íslands 26. júní næstkomandi.
9. maí
Joy og Bliss fóru í augnskoðun í morgun sem haldin var á vegum Hundaræktarfélags Íslands. Danski dýralæknirinn Finn Boserup framkvæmdi skoðunina. Niðurstaða augnskoðuninar er að eru báðar með tær og heilbrigð augu.
10. apríl
Í dag var haldinn ársfundur Vinnuhundadeildar Hundaræktarfélags Íslands og bauð Steinar sig fram til stjórnarstarfa. Hann var kosinn í stjórn til tveggja ára og hlakkar mikið til að takast á við þetta nýja skemmtilega verkefni.
9. -12. apríl
Við litla fjölskyldan skelltum okkur í heimsókn til mömmu Önnu á Höfn í Hornarfirði yfir páskahelgina.
Mamma hennar Önnu á fjóra Siberian Husky hunda og var því hundahópurinn orðinn ansi stór;)
Eins og alltaf var yndislegt að koma austur og höfðum við það gott í faðmi Vatnajökuls.

30. mars
Við vorum að fá sendar niðurstöður úr olnbogamyndunum hennar Queen okkar og gleður okkur að segja frá því að hún er einnig frí frá olnbogalosi.
21. mars
Eftir langan og skemmtilegan dag á Stórhundadögum í Garðheimum fengum við þær frábæru fréttir að Almanza Belle Of The Ball "Spira", mamma hennar Bliss okkar varð í dag sænskur meistari !
Óskum góðvinkonu okkar og ræktanda Bliss og Joy, Sussie Karlström innilega til hamingju með Spiru!
14. mars
Í dag þeytti Queen okkar Hlýðni Brons próf og við gætum ekki orðið sáttari með niðurstöður prófsins.
Queen varð stigahæðsti hundur prófs með 165 stig af 180 mögulegum.
Stigagjöfin var eftirfarandi:
Skoða tennur - Einkunn 10
Hælganga í taum - EInkunn 9,5
Hælganga án taums - Einkunn 8,5
Liggja úr kyrrstöðu - Einkunn 9
Innkall úr sitjandi stöðu - Einkunn 9
Standa á göngu - Einkunn 10
Liggja kyrr í 2 mínútur - Einkunn 9
Heildarmat - Einkunn 9
Að sjálfsögðu eins og alltaf er, er hægt að gera betur. Þetta var frumraun hennar í Hlýðni Brons prófi og stefnum við að sjálfsögðu hærra!
1. mars
Þar sem Anna er hundasnyrtir að atvinnu er mikið að gera hjá henni í hundasnyrtingunum á hundasýningar helgi sem þessari.
Við vöknuðum því þreytt í morgun en mjög spennt enda komið að Joy, Bliss og Champ að spreyta sig í sýningarhringnum.
Flatcoated Retrieverarnir voru dæmdir af Laurent Picard frá Sviss og voru 5 skráðir til dóms.
Bliss og Joy voru sýndar í ungliðaflokki og fengu báðar excellent og meistaraefni.
Joy hafði betur en Bliss að þessu sinni og hafnaði í fyrsta sæti og Bliss í öðru.
Þær kepptu síðan á móti tíkinni sem keppti í meistaraflokki. Joy var valin besta tík tegundar og Bliss þriðja besta tík.
Joy keppti síðan á móti besta rakka tegundar og hafði hún betur og var valin besti hundur tegundar!
Dagurinn var ekki búinn hjá Joy enda átti hún eftir að keppa í tegundahópi 8 á móti öllum hinum sækjandi veiðihundunum.
Joy hafnaði í öðru sæti í tegundahópnum sem er stórglæsilegur árangur hjá aðeins 15 mánaða gamalli tík!
Dómurinn hennar Joy:
Excellent type. 15 months old, very well matured. Beautiful expression and head.
Proper rib cage, strong hindquarters. Very nice coat. Excellent neck and shoulders.
Excellent mover. Excellent presented.
Dómurinn hennar Bliss:
Very attractive 14 months black female. Stylish and shown in a very good condition. Could have more foreface.
Good size. Excellent coat. Excellent presented. Moves well.
Steinar hljóp svo inn í hringinn með Champ í vinnuhundaflokki og fékk hann excellent. Dobermann hundarnir voru dæmdir af Hans Van Den Berg.
Champ endaði með góðan dóm og varð annar besti rakki tegundar!
Dómurinn hans Champ var svo hljóðandi:
Good in bone and substance. Nice headshape. Flat skull. Excellent expression. Good ear-set. Sufficient forechest.
A bit long in body. Excellent croup and rear. The tan is a bit light in color. Good temperament. Moves with drive.
Front movement could be stronger.
28. febrúar
Í dag sýndum við hana Queen okkar á alþjóðlegri hundasýningu Hundaræktarfélags Íslands.
43 Þýskir fjárhundar voru skráðir til leiks og Queen sýnd í opnum flokki. Dómari var Hans Van Den Berg frá Hollandi.
Hún gerði sér lítið fyrir og vann opna flokkinn með excellent í einkunnargjöf og meistaraefni.
Í keppni um bestu tík tegundar varð hún síðan í þriðja sæti.
Queen fékk góðan dóm og var hann svo hljóðandi:
Excellent in type. Very nice in size, bone and substance. Good head shape.
Excellent ear-set. Nice eyes. Good forechest. Good coat texture. On the move she could use her
hindquarters more.
7.-8. febrúar
Um helgina sat Anna hringstjóranámskeið á vegum Hundaræktarfélags Íslands.
Námskeiðið var frábært í alla staði og hlakkar hana til að starfa sem hringstjóri á sýningum félagsins í framtíðinni.
24. janúar 2009
Í dag byrjuðum við með Joy og Bliss á retriever námskeiði á vegum hundaskóla Hundalífs www.hundalif.is
VIð skemmtum okkur frábærlega vel og hlakkar mikið til næstu æfinga ;)
18. janúar 2009
Um helgina átti Anna frábæra helgi á Höfn í Hornafirði þar sem móðir hennar býr og Siberian Husky hundarnir þeirra.
Móðir hennar Önnu er einnig með tvo yndislega 9 vikna gamla hvolpa og var því ansi fjörugt hjá þeim mæðgum.
Hérna koma myndir frá helginni:

11. janúar 2009
Nýja heimasíðan er komin í loftið!
5. janúar 2009
Í dag fór fram alþjóðleg sýning í Gautaborg í Svíþjóð sem gengur undir nafninu MyDog. Við fengum þær frábæru fréttir að gotsystir Bliss sem heitir Almanza So Enough “Alva” fékk sitt fyrsta meistarastig í dag aðeins árs og eins dags gömul.
Þvílíkur árángur hjá Ölvu sem á svo sannarlega framtíðina fyrir sér!
Alva er í eigu góðrar vinkonu okkar Åsu Krantz.
4. janúar 2009
Hátíðarhöldin halda áfram! Blissin okkar yndislega varð eins árs í dag!
1. janúar 2009
Við, litla fjölskyldan í Þorlákshöfn, óskum ykkur gleðilegs nýs árs og þökkum við fyrir gömlu árin!
|