Fréttir 2008
24. desember 2008
Við óskum öllum gleðilegra jóla og vonum að þið hafið það sem best yfir hátíðirnar!
19. desember 2008
Í dag varð hún Joy okkar eins árs! Það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt en það virðist vera svo stutt síðan við fengum hana í hendurnar! Við óskum öðrum gotsystkynum Joy innilega til hamingu með daginn.
7. desember 2008
Í dag héldum við upp á afmælið hans Champs og þar sem Arwen, gotsystir hans er í pössun hjá okkur naut hún dagsins með okkur! Champ og gotsystkyni hans urðu 5 ára gömul í dag;)
2. nóvember 2008
Við tókum þátt með Champ og Queen í Sporaprófi sem var haldið á vegum Hundaræktarfélagi Íslands. Þau stóðu sig svona rosalega vel og náðu bæði prófinu, Champ með 86 stig og Queen með 70 stig. Prófdómari var Albert Steingrímsson.
26. oktober 2008
Í dag bættist við nýr fjölskyldumeðlimur sem mun búa hjá okkur næstu vikurnar. Daman heitir Arwen og er gotsystir Champs.
Arwen smellpassar inn í hundahópinn okkar og er Champ rosalega ánægður með þessa viðbót í fjölskylduna.
24. oktober 2008
Fengum mjaðmaniðurstöðurnar hennar Queen í dag og þær sýndu að hún er frí frá mjaðmalosi og með heilbrigðar mjaðmir. Við bíðum spennt eftir niðurstöðum úr olnbogamyndatökunni.
21. oktober 2008
Í dag héldum við upp á afmælið hennar Queen okkar en hún varð 2 ára í dag.
Litla drottningin þurfti þó að
11. september 2008
Í dag keyrðum við norður á Akureyri að taka á móti hundunum okkar sem voru að losna úr einangrun eftir mánaðardvöl!
Þau líta öll rosalega vel út og eru hress og kát!
Við þökkum Kristni og konunni hans kærlega fyrir að hafa hugsað svona vel um börnin okkar!
22. ágúst 2008
Í dag fengum við þær sorglegu fréttir að Hektor (Almanza I Hate Mondays) er látinn.
Anna var svo heppin að fá að kynnast Hektori vel og nýlega eyddi hún helginni með honum í Tvååker þegar hún og Ragnhild voru á sýningarferðalagi.
Hektor var afi Joy og erum við ofboðslega heppin að eiga barnabarn hans!
13. ágúst 2008
Í dag flytjum við heim til Íslands!
9. ágúst 2008
Í dag fór ég í heimsókn til vinkonu minnar Fannyar Hellström og áttum við yndislegan dag saman. Hún og mamma hennar eiga ræktun sem heitir Heatwave og eru með Golden Retriever og Dachshund. Ég kynntist Fanny þegar við kepptum saman á Crufts árið 2005 og höfum við verið í sambandi síðan. Það var yndislegt að fara til Fannyar og kveðja hana áður en við flytjum heim til Íslands.
20. júlí 2008
Í dag héldum við á sýningu í Köping. Joy og Bliss voru báðar skráðar til leiks og þar sem þær voru báðar í sama flokki fórum við Steinar saman inn í hringinn með þær.
Blissin litla bræddi dómarann upp úr skónum og varð besta tíkin!
Joy varð önnur besta tík tegundar í hvolpaflokki á eftir Bliss.
Bliss keppti svo við Nisse, gotbróður sinn sem hafði orðið besti rakkinn en Bliss kom sá og sigraði og varð besti hvolpur tegundar.
18. júlí 2008
Í dag höldum við upp á 25 ára afmæli Steinars;)
12. júlí 2008
Fréttir frá Tvååker!
Joy varð besta tík í hvolpaflokki og annar besti hvolpur tegundar.
Anna sýndi í Almanza ræktunarhópi og varð hann besti ræktunarhópur sýningar!
11. júlí 2008
Úrslitin frá sýningunni eru þau að Joy varð besta tík tegundar í hvolpaflokki en hafði rakkinn betur í keppni um besta hvolp tegundar.
10. júlí 2008
Í morgun lagði Anna af stað með Ragnhild til Tvååker með fjölmarga Almanza hunda. Þar meðaltalda hana Joy. Frida vinkona þeirra var svo yndisleg að leyfa þeim að gista hjá sér en hún er búsett í nágreninu við sýningarsvæðið.
3.-6. júlí 2008
Þessa dagana er Heimssýningin í fullum gangi hérna í Svíþjóð. Við Steinar erum með gesti frá Íslandi í heimsókn og er svo sannarlega gaman hjá okkur.
Frá sýningarúrslitum er í fréttum að Almanza ræktunarhópurinn varð besti ræktunarhópur sýningar! Alveg frábær upplifun og gaman að geta glaðst með Ragnhild og Sussie sem eiga þetta svo fyllilega skilið!
Á sýningunni varð amma Bliss besta tík tegundar og fékk titilinn WW-08 !
29. júní 2008
Fréttir frá Íslandi !
Lance, Ameríski Cockerinn sem Bryndís “systir” er með í láni varð Besti Hundur Sýningar á sumarsýningu Hundaræktarfélags Íslands! Innilega til hamingju Bidda mín!
25. júní 2008
Snæfríður og Steinar lögðu land undir fót og fór til Íslands í dag.
Snæfríðar okkar verður sárt saknað!
7. júní 2008
Í dag fór Anna með Joy og Bliss til Sorunda því að þar fer fram sannkölluð Almanza helgi! Þær þrjár skemmtu sér alveg frábærlega vel og þakka Ragnhild og Sussie alveg kærlega fyrir frábæran dag!
30. maí 2008
Í hópinn hefur bæst nýr krullhærður fjölskyldumeðlimur!
Það er Dverg Púðlinn, hún Destiny og hún kemur frá virtum og þekktum ræktanda á Ítalíu. Hún er aðeins 2 mánaða og mun vera hjá okkur þangað til hún hefur aldur til að setjast að á Íslandi. Hún er ansi líflegur og skemmtilegur hvolpur svo að við sjáum fram á ansi líflega mánuði framundan!
17. maí 2008
Þetta er svo sannarlega mikill sýningar mánuður og ekki hægt að biðja um betri úrslit. Bliss fór á sína fyrstu sýningu í morgun og Joy á sína fjórðu.
Margir hvolpar mættu til leiks og er skemmtilegt að segja frá því að Blissin litla vann bestu tík tegundar í hvolpaflokki og varð Joy fimmta besta tík.
11. maí 2008
Ferillinn byrjar varla betur fyrir hana Joy okkar í sýningarhringnum!
Joy hafði engu gleymt frá gærdeginum og varð aftur besti hvolpur tegundar og í úrslitunum varð hún þriðji besti hvolpur sýningar.
Við erum svo stolt af snúllunni okkar!
10. maí 2008
Frábærar fréttir bárust frá Gotland rétt í þessu! Joy varð besti hvolpur tegundar í morgun og varð síðar í dag annar besti hvolpur sýningar!
Hlökkum til að heyra fréttir frá sýningunni á morgun!
9. maí 2008
Joy fór í dag í sitt fyrsta ferðalag. Hún fór til Gotland með Sussie því að um helgina fer fram tvöföld sérsýning fyrir Spaniel og Retriever hunda.
3. maí 2008
Joy var sýnd á sinni fyrstu sýningu í dag, sérsýningu fyrir Flatcoated Retriever.
Henni gekk frábærlega!
Hún varð besti hvolpur sýningar!
29. apríl 2008
Í dag eru liðin 2 ár síðan Gunnarsholts englarnir okkar létust í hræðilegu slysi.
Það líður ekki sá dagur sem við hugsum ekki um þau og erum við svo ótrúlega þakklát fyrir að Dísa hafi gerið okkur Queen því að hún hefur svo sannarlega hjálpað í gegn um sorgina.
13. apríl 2008
Það er mikið ferðalag á okkur þessa dagana og lá leið okkar í dag að sækja hana Snæfríði sem er Enskur Bulldog. Hún er aðeins tæplega 3 mánaða gömul og mun vera hjá okkur til fimm mánaða aldurs en þá mun hún leggja land undir fót og flytja til nýrra eigenda á Íslandi.
12. apríl 2008
Anna lagði leið sína með lest til Borås í Svíþjóð að sækja hann Tage sem við erum að fara að passa í nokkra daga. Hann er Enskur Cocker og kemur úr ræktun sem heitir Line Sam. Hann endar svo vistunina hjá okkur með því að fara til Íslands þar sem hann mun búa hjá nýjum eigendum.
25. mars 2008
Bonita fór í morgun til Íslands! Það er búið að vera alveg ótrúlega gaman að hafa hana hérna og eigum við eftir að sakna hennar sárt.
15. mars 2008
Anna lagði af stað á sýningu í Malmö í gær með Emelie vinkonu sinni og tóku þær með sér nokkra Almanza hunda fyrir Ragnhild og Sussie. Anna sýndi yndislegan hund að nafni Lotus (Almanza Taste Of Pride) og vann hann sinn flokk með meistaraefni.
Emelie vann keppni ungra sýnenda.
3. mars 2008
Bliss okkar er loksins eftir langa 8 vikna bið komin til okkar, henni líður vel og er líflegur skemmtilegur hvolpur.
Eins og Joy, kemur Bliss úr Almanza ræktun hér í Svíþjóð.
1.-2. mars 2008
Anna fór í ferð til Íslands í þeim tilgangi að fara á Alþjóðlega hundasýningu Hundaræktarfélags Íslands og sýna þar nokkra hunda.
Hérna koma úrslit þeirra hunda sem hún sýndi með góðum árangri:
Gunnarsholt’s Joop (Þýskur fjárhundur): Besti rakki tegundar með íslenskt- og alþjóðlegt meistarastig og varð íslenskur meistari í dag! Þetta var svo sannarlega ánægjuleg úrslit fyrir okkur þar sem Joop er faðir hennar Queen okkar.
Anna sýndi einnig fjóra Boxer hunda fyrir góða vinkonu okkar Unni Hagalín með Hagalíns ræktun. Úrslitin voru svo sannarlega ánægjuleg!
Hagalíns Close´N´Personal: Besti unghundur, besti rakki tegundar, besti hundur tegundar með íslenskt meistarastig.
ISCH Roamaro Hot Rock: Annar besti hundur tegundar með alþjóðlegt meistarastig.
Hagalíns Catch The Spirit: Besta tík í unghundaflokki, önnur besta tík tegundar með íslenskt meistarastig.
ISCH Socotra She´s Like The Wind: Besta tík tegundar með alþjóðlegt meistarastig.
Anna fékk í hendurnar Þýskan Fjárhundshvolp í hendurnar rétt áður en úrslit hófust en hann varð besti hvolpur tegundar fyrr um daginn.
Hann heitir Gunnarsholts Ramon og er samfeðra Queen okkar.
Ramon er ofboðslega skemmtilegur hvolpur, gullfallegur með kröftugar hreyfingar.
Hann gerði sér lítið fyrir og vann besta hvolp sýningar undir dómaranum Diane Anderson.
Anna fór síðar með Boxerinn Choco (Hagalíns Close´N´Personal) í úrslitin í tegundahóp 2 og endaði Choco í fyrsta sæti aðeins 14 mánaða gamall!!
15. febrúar 2008
Eftir langa bið er Joy komin til okkar.
Joy er af tegundinni Flatcoated Retriever og kemur frá Almanza ræktun hér í Svíþjóð.
8. janúar 2008
Í kvöld fórum við að ná í litla 3 mánaða papillon skvísu sem við ætlum að passa fyrir góðvini okkar á Íslandi. Papillon skvísan heitir Bonita og kemur frá mjög virtum ræktanda sem býr hérna nálægt okkur. Hundarnir taka henni Bonitu rosalega vel og sjáum við fram á hrikalega skemmtilega tíma framundan ;)
|