Fréttir 2010
Fréttir 2010
Fréttir 2009
Fréttir 2008
30. desember 2010
Gleðilegt nýtt ár!
26. desember 2010
Við erum búin að hafa það afar gott yfir hátíðarnar og búin að borða hreinlega á okkur gat! Hundunum þykir gott að hafa okkur heima og fá daglegu nagbeinin sín í tilefni af jólunum!
Fengum þessa sætu mynd af honum Jökli (True Bliss Royal-Rei) en hann hefur greinilega haft það gott yfir hátíðarnar!

24. desember 2010
Gleðilega hátíð!
19. desember 2010
Joy okkar er 3 ára gömul í dag og það er ekki slæm afmælisgjöf sem hún fékk í dag en góðar vinkonur okkar og ræktendur Joy og Bliss, Ragnhild Ulin og Susanne Karlström urðu ræktendur ársins í Svíþjóð! Þær voru krýndar á Stóra Stockhólm sýningunni í Svíþjóð í dag. Anna sýndi á nokkrum sýningum fyrir þær í ár og er það okkur það mög mikilvægt að eiga Ragnhild og Sussie að sem vini, leiðbeinendur og ræktendur af hundunum okkar.
7. desember 2010
Í dag hefði elsku hjartans Champ okkar orðið 7 ára gamall í dag, hann lifir í minningu okkar og söknum við hans sárt♥

2. desember 2010
Í kvöld á opnu kvöldi Retriever deildarinnar voru stigahæstu Retriever hundar ársins heiðraðir.
Fallega stelpan okkar hún Joy er stigahæsti Flatcoated Retriever ársins og samkvæmt lista Hundaræktarfélags Íslands yfir stigahæstu hunda er hún stigahæsti Retriever ársins einnig.
Við erum ákaflega stolt af prinsessunni okkar!

28. nóvember 2010
Fallegi prinsinn hann Uggi (Gunnarsholts Tristan) sem er undan henni Queen okkar er í pössun hjá okkur í nokkra daga. Uggi er mikill gleðigjafi á erfiðum tímum sem þessum enda er hann með alveg einstaka skapgerð og er aldrei langt undan með kossana. Við erum afskaplega stolt af þessum yndislega prins.

20. nóvember 2010
Champ okkar, yndislegasti hundur veraldar sofnaði svefninum langa í dag hérna heima eftir baráttu við hjartað sitt! Champ var einstakur og skilur okkur eftir með tómt hjarta og uppfull af sorg og söknuði.
12. nóvember 2010
Nú er húsið vægast sagt tómlegt! Síðasti hvolpurinn, Róman (True Bliss Royal-Roi) fór á nýja heimilið sitt í dag. Það verður spennandi að fylgjast með öllum hvolpunum í framtíðinni enda alveg afskaplega lofandi hvolpar!
Hér koma nokkrar myndir af Róman og Kríu síðasta daginn sem þau voru bæði á heimilinu

9. nóvember 2010
Þá er yndislega tíkin úr gotinu okkar farin á nýja heimilið sitt. Kría á hún að heita en hún heitir True Bliss Royal Reina í ættbók. Hún er afar skemmtileg og fjörugur hvolpur sem á eftir að vegna vel á nýja heimilinu hennar í sveitinni.
30.-31. október 2010
Anna sótti skemmtilegt og lærdómsríkt ræktunarnámskeið á vegum Hundaræktarfélags Íslands. Fyrirlesarar voru Liz-Beth Liljeqvist og Ann-Caterin Edoff.
26. október 2010
Það gleður okkur að segja frá því að við erum nú eigendur ræktunarnafnsins True Bliss.
Við erum afskaplega ánægð með nafnið enda þýðir það sannkölluð hamingja, gleði, ánægja og er það lýsandi fyrir okkur og ferfætlingana okkar.
21. október 2010
Í dag á elsku besta Queen okkar afmæli, orðin 4 ára gömul fallega drottningin! Við erum ævinlega þakklát fyrir mömmustelpuna okkar sem er okkur alltaf svo trygg og mikill gleðigjafi ♥ Það er einnig afmælisdagur hjá okkur tvífætlingunum en við Steinar eigum 5 ára sambandsafmæli í dag.
3. október 2010
Nú eru bara tveir hvolpar eftir í kotinu þar sem Jökull (True Bliss Royal-Rei) fór með nýju fjölskyldunni sinni heim í dag. Jökull er afskaplega fallegur, duglegur lofandi hvolpur sem mun án efa gleðja nýju frábæru fjölskylduna sína um ókomin ár.
2. október 2010
Fyrsti hvolpurinn fór í morgun, Hector (True Bliss Royal-Ra) ætlar að búa hjá yndislegri fjölskyldu á Akureyri. Það er alltaf jafn erfitt að kveðja hvolpana en það huggar okkur að vita af hvolpunum hjá frábæru fólki þar sem vel er hugsað um þá.
16. september 2010
Hvolparnir urðu 7 vikna í dag, tíminn líður of hratt! Það er afar gaman að hvolpunum enda eru þeir fjörugir, skemmtilegir og opnir karakterar!
4. september 2010
Við fórum í skemmtilega árlega Laugarvegsgöngu Hundaræktarfélags Íslands í dag! Takk fyrir samveruna elsku vinir!
Hér fyrir neðan má sjá mynd af Ugga, Trix, Joy og Bliss.

29. ágúst 2010
Við vægast sagt svífum á bleiku skýji!
Fallega Trix okkar (Gunnarsholts Trix) varð Besti hundur tegundar af fjölmörgum Schäfer hundum á hundasýningu HRFÍ í dag með sitt fyrsta meistarastig aðeins 12 mánaða gömul! Trix er undan Queen og ISCH ISW-07 BH SCHH1 Kkl Gildewangen´s Istan.
Bliss okkar, ISshCH Almanza Can´t Get Enough var einnig sigursæl á sýningunni í dag og varð Besti hundur sýningar með CACIB. Takk Ágústa fyrir að sýna hana svona vel fyrir okkur!
7. ágúst 2010
Í dag opnaði fyrsti hvolpurinn augun sín og hvolparnir eru aðeins 9 daga gamlir! En það var auðvitað daman í hópnum sem ætlar að verða mjög mikill skörungur greinilega enda afskaplega dugleg!
Það er svo dásamlegt þegar hvolparnir byrja að opna augun.
5. ágúst 2010
Hvolparnir eru orðnir viku gamlir, það lítur út fyrir að þeir opni augun sín á næstu dögum. Þeir eru að nálgast eitt og hálft kíló í þyngd og gera lítið annað en að hanga á mjólkurbarnum hjá mömmu sinni sem stendur sig eins og hetja:)
3. ágúst 2010
Í dag er eitt ár síðan Trix (Gunnarsholts Trix), Cara (Gunnarsholts Thule) og Uggi (Gunnarsholts Tristan) fæddust ♥
Tíminn líður svo hratt en þau verða alltaf litlu hvolparnir í mínum augum!
30. júlí 2010
Hvolparnir þyngjast og þyngjast og dafna afskaplega vel enda Queen fullkomin mamma!
Hérna koma nokkrar myndir af þeim dagsgömlum
29. júlí 2010
Fjórir stórir gullmolar eru komnir í heiminn! 3 prinsar og 1 prinsessa:)
Queen er afar dugleg, stolt móðir og hvolparnir sprækir og kröftugir eins og þeir eiga að vera!
24. júlí 2010
Við ákváðum að gera hvolpaherbergið tilbúið og taka inn gotkassann þar sem Queen fer ört stækkandi og okkur sýnist á öllu að hvolparnir ætli að fara að láta sjá sig á næstu dögum. Við auðvitað iðum af spenningi og tilhlökkun!
18. júlí 2010
Í dag er afmælið hans Steinars, orðinn 27 ára gamall! Við héldum upp á það með því að fara út að borða með góðra vina hópi:)
27. júní 2010
Við erum nokkuð viss um að hér séu á leiðinni hvolpar undan Queen okkar en bumban hennar fer ört stækkandi. Hún var pöruð við gullpunginn ISW-07 ISCH BH Kkl SCHH1 Gildewangen´s Istan.
25. júní 2010
Anna er núna í Danmörku á Heimssýningunni sem þar er haldin.
Hún fór þangað frá Svíþjóð ásamt vinum sínum í þeim tilgangi að sýna fallegu Almanza hundana ásamt ræktendum og öðrum vinum. Hún sýndi í dag einn af uppáhalds hundunum sínum CH Almanza Wild at Heart og unnu þau stóran opinn flokk rakka og endaði hann sem annar besti rakki á eftir Multi CH Almanza Lets Mingle Im Single sem er pabbi Joy. Henni hlotnaðist einnig sá heiður að fá að sýna í ræktunarhópi tegundarinnar en þar höfðu þau sigur úr býtum og kepptu í stóra úrslita hringnum seinna um daginn.
Hér koma nokkrar myndir frá ferðalaginu!
20. júní 2010
Þvílíkur dagur hérna í Jönköping í Svíþjóð! Anna sýndi CH Almanza Wild at Heart (Sune) í dag og varð hann Besti hundur tegundar og annar besti hundur í tegundahópi. Einnig sýndi hún Sune í ræktunarhópi Almanza og varð hópurinn besti ræktunarhópur sýningar!
17. júní 2010
Við höldum upp á afmæli Önnu í dag og en í dag er einnig mikill hátíðardagur þar sem í dag er einnig þjóðhátíðardagur Íslendinga. Anna fór hinsvegar í dag til Svíþjóðar og heldur því upp á daginn sinn hjá vinum sínum í Svíþjóð.
6. júní 2010
Við trúum þessu varla enn! Joy okkar, ISshCH Almanza Let´s Join The Joyride varð þriðji Besti hundur sýningar hjá virta dómaranum Paul Stanton!

5. júní 2010
Þvílíkur dagur! Joy okkar, varð Besti hundur tegundar og Besti hundur í tegundahópi!! Það er í fyrsta skipti sem Flatcoated Retriever vinnur tegundahóp á Íslandi!
Bliss okkar varð önnur besta tík tegundar og fékk sitt síðasta meistarastig og er því orðin íslenskur meistari!
Á morgun förum við í Best In Show með hana Joy okkar svo... krossið fingur ;)
29. maí 2010
Joy stóð sig afskaplega vel í skapgerðarmati í dag og stóðst það með príði!
24. maí 2010
Gleðifréttir bárust í dag!
Blissin okkar (Almanza Can´t Get Enough) er frí frá mjaðma- og olnbogalosi
24. apríl 2010
Sporuðum með Queen og Ugga son hennar og Joy og Bliss í dag! Allir voru ofsalega duglegir og Uggi ætlar greinilega að verða duglegur sporahundur eins og mamma sín!
21. mars 2010
Þá er eldgos byrjað í Eyjafjallajökli! Verið er að rýma húsin sem eru nálægt og við hugsum til vina okkar sem búa í grend við gosið og allra dýranna sem ekki er hægt að koma í burtu frá hættusvæðinu!
18. mars 2010
Anna er nú í stjórn Schäferdeildarinnar í Hundaræktarfélagi Ísland. Hún hefur tekið að sér ásamt öðrum stjórnarmeðlimum að gera sitt besta í að rífa upp starfsemi deildarinnar. Spennandi verkefni framundan sem gaman og krefjandi er að taka þátt í.
7. mars 2010
Að hugsa sér! Litla Blissin okkar var heiðruð í dag fyrir að hafa verið stigahæsti Flatcoated Retriever ársins á sýningum fyrir árið 2009 ♥ Frábær árangur hjá þessari ungu dömu!
28. febrúar 2010
Þvílík helgi! Við fórum inn í sýningardaginn svífandi um á bleiku skýji eftir allan árangur gærdagsins!
Börnin hennar Queen voru sýnd í dag og varð Uggi (Gunnarsholts Tristan) besti hvolpur tegundar og Trix (Gunnarsholts Trix) besta tík tegundar í hvolpaflokki. Bæði fengu þau heiðursverðlaun!
Queen varð þriðja besta tík með meistaraefni og gullpungurinn hann GIldewangen´s Istan varð Besti Öldungur Sýningar en hann var sýndur af Önnu.
Hérna eru tvær myndir af sýningunni
27. febrúar 2010
Þetta ár ætlar að byrja vel!
Joy varð í dag Besti hundur tegundar á alþjóðlegri sýningu Hundaræktarfélags Íslands og því orðin nú íslenskur meistari! Anna sýndi einnig fallegan Afghan Hound, Golddragon Rock It Man "Felix" varð einnig Besti hundur tegundar og besti hundur í tegundahópi!
Schäferarnir verða sýndir á morgun og Felix, Afghan fer í Best In Show !
26. febrúar 2010
Við Steinar fluttum í dag frá Hveragerði til Þorlákshafnar og völdum okkur stressandi dag til þess að flytja! Allt á kafi í snjó og stór sýningarhelgi um helgina! Best að gera gengið klárt fyrir sýninguna!
26. janúar 2010
Tókum mynd af Cöru, (Gunnarsholts Thule) dóttur Queen í dag! Hún er afskaplega lofandi.
Myndin er ekki í góðum gæðum því miður en myndin sýnir hvað daman er afskaplega vel gerð!
Cara er flutt til Danmerkur, en þangað voru eigendur hennar að flytja og auðvitað fylgir hún með ;)
Okkur þótti sárt að missa hana úr landi en við fáum að fylgjast grannt með henni!

8. janúar 2010
Fengum þær gleðifréttir að Diesel (Multi CH Let´s Mingle Im Single), pabbi Joy varð Besti hundur tegundar og Besti hundur í tegundahópi á My Dog sýningunni í Svíþjóð í dag!
4. janúar 2010
Litla fiðrildið hún Bliss á afmæli í dag, 2 ára prinsessa ♥
1. janúar 2010
Við óskum öllum gleðilegs nýs árs! |