Handling
Í mörg ár hef ég verið að sýna hunda á hundasýningum, mína eigin og fyrir aðra.
Ferillinn minn sem sýnandi byrjaði þegar við fengum Siberian Husky hundana okkar. Þá byrjaði ég að taka þátt í keppni ungra sýnenda með Siberian Husky rakkann okkar, INTUCH ISCH Ankalyn Mascalzone Latino.
Ég keppti í ungum sýnendum með góðum árangri þangað til ég varð sautján ára og keppti m.a. fyrir hönd Íslands á stærstu hundasýningu í heimi, Crufts, árin 2004 og 2005.
Síðan þá hef ég fengið tækifæri til að sýna fjöldan allan af frábærum hundum af hinum ýmsu tegundum, þar á meðal fyrir hið fræga Flatcoated Retriever kennel Almanza.
Mér hefur hlotnast sá heiður að vera boðið að dæma keppni ungra sýnenda erlendis. Ég hafði virkilega gaman að þeirri reynslu og hlakka mikið til að taka að mér næsta dómaraverkefni.
Hér koma nokkrar myndir frá sýningum.










|