Huldu Loyal Champ
Dobermann rakki
Fæddur: 7. Desember 2003
Ræktandi: Hulda Jónasdóttir
Um Champ:
Champ er kóngurinn í húsinu, allaveganna ef þú spyrð hann sjálfan!
Steinar eignaðist Champ fyrir algjöra tilviljun. Steinar átti pantaðan Siberian Husky hvolp en hann veiktist og lést áður en hann komst í hendurnar á Steinari. Hafði hann einhverjum vikum áður forvitnast um vandað Dobermann got hjá Huldu Jónasdóttur, ræktanda Huldu ræktunar, og hafði hún samband við hann og bauð hvolp sem hafði ekki fengið heimili. Ákvað hann að fara og skoða hvolpinn og var þá ekki aftur snúið.
Champ var uppátækjasamur hvolpur sem fannst ofboðslega gaman að leika við “pabba” sinn. Hann stóð sig mjög vel á öllum hlýðni og sporanámskeiðum og fór í sitt fyrsta vinnupróf, hlýðni brons, aðeins 11 mánaða gamall. Í gegnum tíðina hefur Champ kennt okkur ofboðslega mikið um atferli, þjálfun og hversu æðislegt það er að eiga tryggan félaga eins og hann.
Þegar vel viðrar úti finnst honum yndislegt að eyða löngum stundum utandyra og hlaupa með “pabba” sínum þegar hann fer að skokka. Á köldum vetrardögum finnst honum best kúra uppi í sófa og ekki er það verra ef hann fær að sofa undir sæng á milli “mömmu” og “pabba”. Allir sem heimsækja fjölskylduna falla gjörsamlega fyrir hversu rólegur og yndislegur Champ er og skilur hann ekkert hjarta eftir ósnortið.
Champ hefur stórt hlutverk hérna á heimilinu og tekur hann því mjög alvarlega, sem er að aðstoða við að ala upp hvolpana á heimilinu.
Í öllum verkefnum hefur hann staðið sig frábærlega, hvort sem þau snúast um hlýðni, sporaþjálfun eða bara einfaldan boltaleik.
Augnskodun:
· 28.04.07: án athugasemda
Árangur:
02.11.2008 Lauk sporaprófi 1 með frábærum árangri og náði 86 stigum.
23/24.03 2007 Besti rakki tegundar, besti hundur tegundar með íslenskt meistarastig.
03/04.03 2007 Besti rakki tegundar, besti hundur tegundar með íslenskt meistarastig og alþjóðlegt meistarastig.
03.09.2005 Lauk hlýðni 1 prófi með góðum árangri
06.11.2004 Lauk hlýðni brons prófi með sóma
Ættbók
ISCH
Dobermoray Mastermind |
Dobermorays April Fool
|
Bronco von der Kunigundenhohe at He
|
Borain´s Garte-Blanche og Dobermora |
Dobermoray Shady Lady
|
Dobermorays April Fool
|
Dobermoray A La Carte |
INTUCH ISCH
Blandon von Hoytts Donna |
Kristijans Free Spirit von Hoytt |
Hoytts Diamon Jim CD
|
| Sweet Wind Moriah von Hoytt |
ISCH
Tinna von Hoytt |
Prince Fitzgerald Von Hoytt
|
Princess Maggie Von Hoytt
|
|