Gunnarsholt’s Queen
Þýskur fjárhundur
Fædd: 21. Október 2006
Ræktandi: Hjördís H. Ágústsdóttir
Um Queen:
Queen er svo sannarlega drottningin á heimilinu og hagar sér samkvæmt því. Hún var fyrst af systkynum sínum til að fara af sjálfdáðum upp úr hvolpakassanum og henni finnst enn þann dag í dag mjög mikilvægt að vera fyrst og best í öllu. Anna hefur verið vinkona ræktanda Queen, Hjördísar í mörg ár og tókum við Queen í pössun þegar hún var aðeins þriggja mánaða gömul eftir að Hjördís slasaði sig og lennti inn á spítala. En Hjördís ætlaði sjálf að halda Queen eftir úr gotinu.
Litla drottningin var ekki lengi að vinna hug okkar og hjörtu og nokkrum dögum seinna hringdum við í Hjördísi og sögðum henni eins og er: að við gætum hreinlega ekki hugsað okkur að skila henni. Nokkrum mínútum síðar var hún orðin okkar.
Hjördís gaf okkur hana Queen okkar og verðum við henni ævinlega þakklát fyrir það.
Queen er virkilega námsfús og skemmtileg í vinnu og stefnir Anna hátt með hana.
Heilsufar:
30.03.2009 Niðurstöður úr olnbogamyndatöku sýndu að hún hefur heilbrigða olnboga og fría frá olnbogalosi.
24.10.2008 Mjaðmaniðurstöður sýndu að hún hefði heilbrigðar mjaðmir og fríar frá mjaðmalosi.
Árangur:
28. febrúar 2009 besta tík í opnum flokki með meistaraefni og síðar 3 besta tík tegundar með vara cacib.
14. mars 2009 Varð stigahæðsti hundur prófs á hlýðni brons prófi sem haldið var af HRFÍ með 165 stig af 180 mögulegum.
02. júlí 2008 Stóðst sporapróf 1 á vegum Hundaræktarfélags Íslands.
23.-24 júní 2007 Besta tík tegundar í hvolpaflokki, besti hvolpur tegundar með heidursverðlaun. Annar besti hvolpur sýningar!
Ættbók
ISCH
Gunnarsholts Joop |
ISCH
Gildewangen's Viktor |
V15
Racker von der Königsgarde |
Korin Blue-Iris
|
SG
Gildewangen's Xola |
VA3 (N) INT UCH
Eicko vom Laacher-Haus |
Arkane's Vicky |
ISSCH
Gunnarsholts Enóla |
Fatini´s Zyper
|
VA (DK)
Eroson vom Messebau |
| Rebeta's Lexa |
ISCH
Gunnarsholts Becky |
ISW98-99 INTUCH ISCH
Gildewangen's Aramis |
INTUCH ISCH
Xandra vom Laacher-Haus |
|