Um okkur
Við erum Anna Francesca Rósudóttir og Steinar Lúðvíksson.
Anna eignaðist sinn fyrsta hund sex ára gömul og var það Labrador Retriever tíkin Vöku Lara en hún lést níu ára gömul. Nokkur ár liðu þangað til Anna og móðir hennar fengu sér annan hund enda var sorgin mikil við að missa Löru.
Árið 1999 eignuðust þær Leiru Þórshamar Týra sem er Íslenskur fjárhundur.
Móðir Önnu hafði í mörg ár dreymt um að eignast hunda af tegundinni Siberian Husky en hundar af þeirri tegund voru ekki til á Íslandi þá. Eftir langa leit að hinum rétta ræktanda héldu þær mæðgur til Ítalíu. Þar höfðu þær komist í samband við Paolu Tomei, eiganda Ankalyn ræktunar og stuttu síðar komu tvær tíkur til landsins og rakki ári síðar.
Eftir að þær mæðgur fengu Siberian Husky hundana jókst áhugi Önnu á útivist og finnst henni fátt eins skemmtilegt að festa hundana við sleðann og þeysast af stað.
Anna keppti sem ungur sýnandi í nokkur ár og varð stigahæsti ungi sýnandi ársins árin 2003 og 2004 og keppti fyrir Íslands hönd á Crufts 2004 og 2005.
Anna sat í stjórn Unglingadeildar Hundaræktarfélags Íslands eftir að ferli hennar sem ungum sýnanda lauk.
Hún var einnig tengiliður fyrir Siberian Husky í Hundaræktarfélagi Íslands um nokkurra ára skeið.
Steinar eignaðist sinn fyrsta hund 14 ára gamall og var það Siberian Husky hundurinn Marvin en þá var hann búsettur á Spáni ásamt móður sinni. Marvin var stolið fyrir utan húsið þeirra einn daginn og sást ekki til hans eftir það.
Áhugasvið Steinars breyttist eftir að hafa átt Marvin. Áhuginn varð mikill fyrir vinnu með hunda og því vildi Steinar fá sér kröfumeiri tegund.
Ekki var það fyrr en Steinar var 21 árs gamall að hann eignaðist Dobermanninn Huldu Loyal Champ.
Steinar innritaðist síðan haustið 2004 í Jarð- og landfræðiskor við Háskóla Íslands. Einnig hóf hann nám við Skapgerðarmat á vegum HRFÍ árið 2004. Hann útskrifaðist sem leikmaður árið 2006 og er prófstjóranemi um þessar mundir.
Árið 2007 útskrifaðist Steinar sem eðlisrænn landfræðingur með BS gráðu í landfræði og jarðfræði sem aukagrein. Í dag stundar hann Masters nám við Háskólann í Stockholmi í Kvarter jarðfræði og Eðlisrænni Landfræði.
Árið 2005 byrjuðu Anna og Steinar að stinga saman nefjum á ræktunarnámskeiði á vegum Hundaræktarfélags Íslands á Geysi. Þau njóta þess að eiga sama áhugamál sem dró þau saman í byrjun og síðar til Svíþjóðar að öðlast lífsreynslu. Í dag eru þau flutt aftur heim til Íslands og búa í Þorlákshöfn.
Í dag eiga Anna og Steinar fjóra hunda, Dobermanninn Champ, Þýska fjárhundinn Queen og Flatcoated Retriever stelpurnar Joy og Bliss.
|